Leiðbeiningar

Dreamweaver - Windows

 

dw_win_01

#1 - Undir Site, veldu Manage Sites

dw_win_02

#2 - Veldu vefinn þinn og smelltu síðan léttilega á Edit...

dw_win_03

#3 - Í Advanced flipanum skaltu velja Remote Info.

Access: Veldu FTP.  Þú getur einnig valið að nota dulkóðuð samskipti með SFTP, en þá þarftu að nota SSH/SFTP aðganginn sem þú fékkst þegar þú pantaðir hýsinguna hjá 1984. 

FTP Host: Að því gefnu að lénið þitt sé orðið virkt hjá skráningaraðila, eða því sé beint á vefþjóninn, geturðu sett það hér inn. Ef það er ekki orðið virkt skaltu nota undirlénið í aðgangnum þínum sem endar á 1984.is.

Host Directory:  Slóðin skal alltaf vera Sites/léniðmitt.is .  Ef þetta er rangt slegið inn, virkar uppsetningin ekki. 

Login:  Er notendanafnið undir FTP upplýsingunum í aðgangi þínum að þjónustum 1984.

Password: Lykilorð undir FTP aðgangi.

Þú getur hakað í Save og látið Dreamweaver muna þessar upplýsingar, en vertu þá viss um að vírus og öryggismálum sé ekki ábótavant á vélinni þinni, þar sem til eru vírusar og sóðahugbúnaður sem les FTP lykilorð og senda þau til óprúttinna aðila.

Smelltu á Test til að prufa uppsetninguna þína.

dw_win_04

Upp kemur kvarði sem segir til hvernig gengur.

dw_win_05

Ef þessi gluggi kemur ekki upp, er eitthvað rangt í uppsetningunni, eða eitthvað kemur í veg fyrir samskiptin eins og tildæmis eldveggur. Þú getur prufað að haka eða afhaka í #3 Use passive FTP