Leiðbeiningar
Outlook Express
Smelltu hér ef þú vilt vinda þér beint í uppsetningu á útsendiþjóni 1984
Eftirfarandi gildir um alla póstþjónustu 1984:
Incoming mail server er alltaf mail.1984.is og deilir út pósti á porti 143(IMAP) eða 110(POP). mail.1984.is er líka hægt að nota fyrir Outgoing mail server, þá þarf að auðkenna sig gagnvart honum og breyta port stillingum, þannig að póstforritið sendi á porti 465 eða 587, hægt er að nota port 25, en það er sjaldnast opið fyrir umferð um það hjá Internetveitum vegna spamhættu.
Notendanafn eða User Name er alltaf fullt netfang, hvort sem það er fyrir Incoming eða Outgoing þjón.
Hér að neðan er leiðbeiningar fyrir Outlook Express, sem má ekki rugla saman við forrit sem fylgir með Office pakkanum og heitir Microsoft Outlook, uppsetning á því er hér.
Athugið að texti sem birtist undir mynd, fylgir henni.

#1 - Farðu sem leið liggur í Tools -> Internet Accounts.

#2 - Veldu Mail flipann í þessum gullfallega glugga.

#3 - Display Name: Nafnið þitt eins og þú vilt að það birtist viðtakanda.

#4 - E-mail Address: Netfangið þitt, sem þú ert búinn að búa til í póstumsýslukerfi 1984

#4
My incoming mail server is a: Hér velur þú IMAP ef þú vilt að pósturinn þinn sé aðgengilegur á netinu, tildæmis á https://vefpostur.1984.is og svo í póstforriti eins og Outlook Express. Þú getur líka valið POP, en POP virkar þannig að póstinum er hlaðið niður í tölvuna þar sem netfangið er uppsett og hreinsaður út af póstþjóninum. Það getur verið hentugt, ef þú þarft að nálgast póstinn þinn, en hefur ekki aðgengi að neti. Þú getur hinsvegar þá ekki nálgast póstinn þinn hvar sem er, ekki nema að þú stillir Outlook Express sérstaklega þannig að hann skilji eftir á póstþjóninum afrit af öllum pósti. Möppur eru ekki heldur aðgengilegar annars staðar en úr sömu tölvu ef POP er valið.
Incoming mail(POP3, IMAP, HTTP) server: Hér setur þú alltaf mail.1984.is
Outgoing mail(SMTP) Server: Hér setur þú mail.1984.is, ef þú vilt nota útsendiþjón 1984. Þú getur einnig notað útsendiþjón sem fylgir með netinu sem þú ert á. Fyrir Vodafone, er það mail.internet.is, fyrir Símann postur.simnet.is.
Þrýstu svo varlega á Next hnappinn vinsæla.

#5
Account Name: Fullt netfang.
Password: Já, þetta skýrir sig eiginlega sjálft.
Ekki haka í Log on using Secure Password Authentication(SPA)
Til að ljúka uppsetningu skjaltu þrýsta á Next.

#6
Finish
Uppsetning á útsendiþjón 1984.

#7 - Til að nota útsendiþjón 1984, farðu þá leið sem leið liggur í Tools -> Internet Accounts

#8 - Veldu netfangið sem þú vilt stilla fyrir útsendingu og smelltu því næst á Properties.

#9 - Í Servers flipanum, undir Outgoing Mail Server skal hakað í My server requires authentication - smelltu svo á Settings.

#10 - Veldu Log on using og hamraðu inn fullt netfang undir Account name, og svo lykilorðið þitt. Ekki velja Log on using Secure Password Authentication. Smelltu svo á Ok.
,
#11 - Veldu Advanced í Properties glugganum.
Í Outgoing Server þarftu að skipta út porti 25 fyrir annaðhvort port 465 eða 587. Port 25 er líka virkt í útsendingu, en er yfirleitt er notkun á því bönnuð hjá öllum internetsölufyrirtækjum, vegna andsetinna Windows tölva sem senda ruslpóst.
Nú áttu að geta sent og tekið á móti pósti.