Algengar spurningar
Svör við algengum spurningum um tölvupóst, lén, greiðslur og hýsingu hjá 1984.
Netfang
Ýmislegt gagnlegt um lykilorð, áframsendingar og stillingar.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Stjórnborð hýsingar” fyrir viðeigandi hýsingarpakka.
- Smelltu á “Póstur”
- Finndu netfangið sem þú vilt breyta og smelltu á “Breyta lykilorði”
- Sláðu inn nýtt lykilorð og smelltu “Breyta lykilorði”.
Við mælum með að þú notir netfang sem þú ert með hjá 1984 til að senda póst frá vefsíðunni. Notaðu þjóninn "mail.1984.is", notandanafnið er netfangið þitt og lykilorðið það sama og þú notar til að komast í vefpóstinn.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Stjórnborð hýsingar” fyrir viðeigandi hýsingarpakka.
- Veldu “Póstur”.
- Finndu viðeigandi lén.
- Veldu “Bæta við netfangi”.
- Sláðu inn “Notandanafn”, það sem á að standa fyrir framan @.
- Veldu lykilorð. Ef mælistikan verður græn er lykilorðið gott
- Veldu “Bæta við netfangi”.
Farðu á 1984.is, veldu "Vefpóst" og skráðu þig inn með notandanafni (fullt netfang) og lykilorði.
1984 er mjög annt um persónuvernd viðskiptavina sinna.
Til að fá upplýsingar um hýsingu í áskrift eða aðra aðstoð verður fyrirspurnin að berast frá því netfangi sem skráð er á notandaaðganginn.
Vinsamlegast sendu fyrirspurnir frá því netfangi sem var skráð þegar 1984 aðgangurinn var stofnaður
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Stjórnborð hýsingar” fyrir viðeigandi hýsingarpakka.
- Veldu “Póstur”.
- Finndu viðeigandi netfang.
- Veldu “Sjálfvirk svörun(autoreply)”
- Write your autoreply
- Veldu “Uppfæra”.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Stjórnborð hýsingar” fyrir viðeigandi hýsingarpakka.
- Veldu “Póstur”.
- Finndu viðeigandi netfang.
- Veldu “Áframsending”
- Sláðu inn netfangið sem þú vilt láta áframsenda á (ef netföngin eru fleiri en eitt, aðskildu þau með kommu eða notaðu nýja línu).
- Veldu “Uppfæra”.
Greiðslur
Greiðsluleiðir, gjaldmiðlar og endurnýjun.
Þú greiðir fyrirfram, fyrir eitt eða þrjú ár í einu.
Ef þú vilt hætta áður en tímabilinu lýkur getur þú sagt upp hýsingunni og óskað eftir endurgreiðslu fyrir þá mánuði sem eftir eru af tímabilinu.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Reikningar”, og þá færðu alla reikninga og greiðslur.
Allar greiðslur eru gerðar í stjórnborði notanda. Þú getur greitt með greiðslukorti og PayPal. Við tökum einnig við greiðslum í rafmyntum, Bitcoin og Monero.
Já, en vegna íslenskra skattalega getum við því miður ekki boðið notendum á Íslandi að greiða með rafmynt.
Til að geta greitt með rafmynt þarft þú að:
- Aftengja VPN sem sýnir íslenska staðsetningu
- Þú velur tungumál efst í hægra horni á 1984. Vertu viss um að það sé “Enska”.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Yfirlit”
- Smelltu á „sjálfvirk endurnýjun“ við þá þjónustu sem þú vilt ekki endurnýja.
- Taktu hakið af „endurnýjun virk“.
- Ef þú ætlar að segja upp allri þjónustu hjá 1984 mælum við með að eyða einnig greiðsluleið.
- Þú smellir einfaldlega á ruslakörfuna við greiðsluleiðina sem þú vilt eyða.
Lén
Skráning léna og flutningur.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Farðu í "1984 vörur" og veldu “Lénaskráning”
- Sláðu inn lénið sem þú vilt skrá til að athuga hvort það sé laust.
- Þegar þú hefur valið lén velur samþykkir þú þjónustuskilmála og smellir á “Skrá lén”.
- Farðu í körfu til að klára kaupin.
Ef hýsingarþjónustan sem þú ert hjá leyfir flutninga getum við flutt bæði vefsíðuna þína og tölvupóst yfir til 1984.
Vefsíður sem ekki er hægt að flytja eru t.d. síður sem eru byggðar í lokuðum kerfum eða vefsmíðatólum.
Dæmi um slík kerfi eru t.d. Wix, Squarespace og Shopify. Síður hjá WordPress.com er hægt að flytja að hluta til.
Við gerum það með ánægju og tökum hóflegt gjald fyrir.
Endilega sendu okkur línu ef þú vilt nánari upplýsingar.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Stjórnborð hýsingar” fyrir viðeigandi hýsingarpakka.
- Veldu “Lén”.
- Þar finnur þú valkostina “Bæta við undirléni” og “Bæta við aukaléni”.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Veldu “Stjórnborð hýsingar” fyrir viðeigandi hýsingarpakka.
- Finndu lénið sem þú vilt setja upp áframsendingu fyrir og smelltu á “Frekari stillingar” hægra megin.
- Veldu svo “Áframsending”, “Leyfa áframsendingu”, og sláðu inn lénið sem þú vilt áframsenda til.
Hýsing
Ráð og leiðbeiningar fyrir 1984.
Þú getur eytt öllum aukahýsingum, undirlénum og netföngum með því að fara í Stjórnborð
Aðalhýsingarpakkanum þínum er eytt sjálfkrafa þremur mánuðum eftir að þjónustunni hefur verið sagt upp.
Ef þú vilt loka og eyða þjónustunni strax þarftu að senda okkur tölvupóst frá netfangi sem þú notar í samskiptum við 1984@1984.is.
Þú getur því miður ekki breytt nafnaþjónum fyrir „.is“ lén, sendu okkur línu og við græjum það fyrir þig, 1984@1984.is.
Þú getur hins vegar breytt nafnaþjónum fyrir önnur lén. Skráðu þig inn á stjórnborðið:
- Veldu “FreeDNS”
- Veldu “Sýsla með lén”, Veldu „Nafnaþjónar“ og settu inn allar upplýsingar. “Vista breytingar”.
- Skráðu þig inn á 1984.is
- Í „Yfirliti“ ferðu í viðeigandi hýsingarpakka.
- Veldu “Stjórnborð hýsingar”
- Smelltu á “SQL” flipann
- Finndu viðeigandi gagnagrunn.
- Veldu “Bæta við nýjum notanda”
- Búðu til notandanafn og lykilorð. Skráðu hvot tveggja hjá þér.
- Veldu “Bæta við SQL notanda”
- Smelltu á “Veftól” flipann og smelltu á “Gagnagrunnsumsýsla”
- Nú getur þú skráð þig inn í gagnagrunnsumsýsluna með notandanafninu og lykilorðinu sem þú valdir.
- Finndu gagnagrunninn sem þú vilt fá afrit af.
- Veldu “Flytja út” og vistaðu skrána á tölvunni þinni.
Já, ef netverslunarkerfið sem notar getur keyrt á Linux/Apache vefþjónum.
Hýsingin endurnýjast sjálfkrafa. Ef þú ert með hýsingu í eitt ár, framlengist hún um eitt ár, ef þú ert með hýsingu í þrjú ár endurnýjast hún í þrjú ár.
Við látum þig vita skömmu áður en að endurnýjun kemur og þá getur þú afþakkað endurnýjun.
DDoS vörn
Allar VPS og hýsingarþjónustur hjá 1984 innifela sífellda DDoS vörn án aukakostnaðar.
DDoS mótvægiskerfi okkar sameinar rauntíma umferðargreiningu, sjálfvirka síun og mótvægisaðgerðir hjá tengiaðilum til að greina og stöðva skaðlega umferð eins nálægt upprunanum og hægt er.
Umferð er vöktuð stöðugt með tilliti til árásamynstra, óeðlilegrar hegðunar og þekktrar skaðlegrar virkni. Þegar árás greinist er mótvægisaðgerðum beitt sjálfvirkt til að sía skaðlega umferð en hleypa lögmætri umferð í gegn.
Netinnviðirnir eru hannaðir til að standast árásir sem mælast í tugum terabita á sekúndu. Dreifðar tengingar og margar alþjóðlegar netleiðir gera kleift að sía og gleypa skaðlega umferð án þess að það hafi áhrif á venjulega þjónustu við viðskiptavini.
DDoS vörnin er virk allan sólarhringinn og krefst engrar handvirkrar virkjunar. Greiningar- og mótvægiskerfi greina netumferð stöðugt og bregðast sjálfvirkt við þegar ógnir eru greindar.
Vörnin nær yfir fjölmargar gerðir árása á netlagi, þar á meðal:
- Magnbundnar DDoS árásir
- TCP og UDP flóð
- Endurvarps- og mögnunarárásir
- Skaðleg umferð frá þekktum botnetum
- Samskiptareglubundnar þjónustuneytingarárásir
Markmið okkar er að halda þjónustum gangandi meðan á árás stendur. Síun umferðar og mótvægisaðgerðir eru alltaf valdar fram yfir þjónusturof.
Aðeins í undantekningartilfellum, þar sem nauðsyn krefur til að verja stöðugleika kerfisins í heild, yrði gripið til strangari ráðstafana. Í slíkum tilfellum er haft samband við viðkomandi viðskiptavini eins fljótt og auðið er.
Mótvægiskerfi okkar fá stöðugt upplýsingar um ógnir úr alþjóðlegum gagnabönkum, sem gerir kleift að greina fljótt þekkta árásarinnviði, botnet og skaðleg net. Þetta gerir það að verkum að hægt er að greina og bregðast við ógnum í rauntíma, oft áður en þær hafa áhrif á þjónustu við viðskiptavini.